Skipulagslýsing lögð fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs
Skipulagslýsing var lögð fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í júnílok 2023, vegna nýs deiliskipulags fyrir lóðirnar Stekkjarbakka 4-6 og Álfabakka 7 í Norður-Mjódd.
Skipulagslýsing er lögð fram til að tryggja að almenningur og hagsmunaaðilar komi að skipulagsferlinu á fyrstu stigum. Skipulagslýsing er yfirlit yfir helstu áherslur og forsendur fyrirhugaðrar deiliskipulagsbreytingar og er undanfari þess að unnin sé tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir reitinn í náinni samvinnu við umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar.
Samþykkt var á fundi ráðsins að kynna lýsinguna fyrir almenningi ásamt því að leita umsagnar helstu hagsmunaaðila. Gert er ráð fyrir blandaðri byggð eftir þær breytingar sem verða á deiliskipulaginu. Íbúðum, matvöruverslun, atvinnustarfsemi, dvalarsvæðum og samgönguinnviðum verður komið fyrir á lóðunum. Ekki er um stækkun lóða að ræða en lóðarmörk geta breyst.
Núverandi landnotkun á lóðunum Stekkjarbakka 4-6 og Álfabakka 7 mun taka breytingum í samræri við stefnu Aðalskipulags Reykjavíkur 2040. Svæðið er nú skilgreint sem miðsvæði og verður landnotkunin blandaðri heldur en áður. Gert er ráð fyrir að borgarlína muni liggja í nálægð við lóðirnar í Norður-Mjódd.