Almenningsrými í Norður-Mjódd
Ný almenningsrými sem stuðla að aukinni útiveru og félagslegum tengslum eru meðal áherslna skipulagsvinnunnar og er því gert ráð fyrir almenningsgarði, torgi og vistgötum, svæðum sem verða aðgengileg bæði fyrir íbúa Norður-Mjóddar og aðra borgarbúa.
Almenningsgarður
Tré og göngustígar gera garðinn hlýlegan og notalegan. Myndirnar eru úr hönnunarviðmiðum svæðisins.
Kjallari er undir hluta garðsins en tillagan gerir ráð fyrir nógu þykkri gróðurþekju fyrir u.þ.b. mannhæðarháan gróður. Stærri tré eru staðsett þar sem meira rými er fyrir rætur.
Vistgötur innan svæðisins mynda gönguvænar og aðlaðandi tengingar innan. Yfirbragð þeirra undirstrikar forgang gangandi með markvisssu efnisvali, gróðurnotkun og viðeigandi götugögnum, s.s. bekkjum og lýsingu.
Reiknað er með að regnvatnsbeð brjóti upp langar línur vistgatna í Norður-Mjódd. Regnvatnsbeð eru hluti blágrænna ofanvatnslausna, en með þeim er ofanvatni veitt niður í jarðveginn um gegndræp yfirborð t.d. í regnbeð eða á græn svæði. Jarðvegurinn og gróðurinn hreinsar ofanvatnið af óhreinindum og annarri mengun og verndar þannig grunnvatn og lífríki. Annar kostur regnbeða er að þau skapa aðlaðandi og fallegar aðstæður sem styðja við líffræðilegan fjölbreytileika.
Torg
Torg er ráðgert syðst á reitinum, það tengist fyrirhugaðri borgarlínustöð og verður aðalinngangur að Norður-Mjódd fyrir gangandi umferð og þau sem ferðast að svæðinu með Strætó eða Borgarlínu.
Torgið er ráðgert syðst á uppbyggingarsvæðinu. Þar er reiknað með hörðu yfirborði og gróðri í bland. Gert er ráð fyrir starfsemi á jarðhæð sem virkjar mannlíf á torgsvæðinu. Myndirnar sýna dæmi um erlendar útfærslur slíkra svæða.