Birtugæði umhverfis Norður-Mjódd

Í vinnu við skipulagsgerð er að mörgu að huga og ýmsar greiningar eru unnar til finna út hvernig sé best að móta umhverfið og vinna með nærumhverfinu og skipuleggja í sátt við nágrennið.

Eitt af því sem er skoðað er skuggavarp. Skuggavarp í núverandi aðstæðum er þá borið saman við skuggavarp tillögu sem er í mótun. Venjan er að skoða skuggavarp á jafndægri þ.e. um 21.mars og 21. september , þann 1. maí og á sumarsólstöðum 21. júní. Nokkrar  tímasetningar yfir daginn eru metnar til að sjá hvernig sólin ferðast um svæðið og áhrif byggðar á dvalarsvæði og birtugæði íbúða- og atvinnuhúsnæðis.Eitt af markmiðum skipulagsvinnu í Norður-Mjódd er að skuggavarp hafi ekki áhrif á einbýlishúsin næst Stekkjabakka á sumrin, eða frá 1. maí. Var hæð húsa í tillögunni stillt af miðað við það.

Tillagan sem nú er til skoðunar, á vinnslustigi, skyggir því ekki á umrædd hús á þessum lykil dagsetningum. Á jafndægri í mars og í september myndast ekki skuggavarp að degi til en skuggavarp gerir vart við sig á kvöldin, þess ber þó að geta að í Reykjavík sest sólin kl 19: 50 á jafndægri.

Hér má sjá myndir úr skuggavarpsgreiningu tillögunnar sem er nú til skoðunar. Hér er miðað við 1. maí  og 21. júní frá kl. 09 til kl. 19 og jafndægur á sama tíma. Þessi tillaga er ekki komin í auglýsingu eða kynningarferli og er því enn á vinnslustigi.

Skuggavarp 21. júní. Myndir úr skuggavarpsgreiningu sem unnin var á skipulagstillögu í vinnslu fyrir Norður-Mjódd.

Skuggavarp 1. maí. Myndir úr skuggavarpsgreiningu sem unnin var á skipulagstillögu í vinnslu fyrir Norður-Mjódd.

Skuggavarp á jafndægri (21. mars og 21. september). Myndir úr skuggavarpsgreiningu sem unnin var á skipulagstillögu í vinnslu fyrir Norður-Mjódd.

Next
Next

Deiliskipulagsdrög kynnt fyrir Umhverfis- og skipulagsráði