Norður-Mjódd

Klasi vinnur að skipulagningu blandaðrar byggðar í Norður-Mjódd. Þar verður gott aðgengi að verslun, þjónustu, stofnbrautum og útivistarsvæðinu við Elliðaárdal.

Þróun með langan aðdraganda

Norður-Mjódd var skilgreind sem þróunarsvæði í aðalskipulagi Reykjavíkur 2010. Hjólin fóru að snúast þegar Garðheimar hófu undirbúning flutninga í hentugra húsnæði.

Sú sérhæfða bygging sem hýsti Garðheima mun nú víkja ásamt bensínaafgreiðslu og bílasölu. Í þeirra stað rís ný byggð, dýrmætt tækifæri til að styðja verslun innan hverfisins og efla þann góða hverfisanda sem einkennir svæðið.

Markmiðið er að móta grundvöll fyrir fjölbreytt mannlíf, ekki síst þeim sem vilja minnka eða stækka við sig innan Breiðholtsins og njóta nútímalegs húsnæðis með alla helstu þjónustu í göngufjarlægð.

  • Fjölbreyttar íbúðir

    Fjölbreyttar íbúðir

    Áhersla á fjölbreyttar stærðir íbúða sem henta mismunandi lífsskeiðum og fjölskyldumynstri.

  • Fjölbreyttir ferðamátar

    Vel tengt fyrir alla ferðamáta

    Biðstöð borgarlínu verður við Stekkjabakka. Gott aðgengi er að öflugum almenningssamgöngum, stígakerfi og stofnbrautum. 

  • Blágrænar ofanvatnslausnir

    Blágrænar lausnir fyrir ofanvatn

    Regnvatni er veitt í safnlautir á yfirborði, það styður náttúrulega hringrás vatns og bætir umhverfið.

  • Sólrík og skjólgóð dvalarsvæði

    Sólrík og skjólgóð dvalarsvæði

    Lögð er áhersla á fjölbreytt, sólrík og skjógóð dvalarsvæði fyrir alla aldurshópa.

Deiliskipulag í vinnslu

Klasi hefur unnið að deiliskipulagsgerð Norður-Mjóddar í góðu samráði við Reykjavíkurborg síðan 2022. Skipulagssvæðið er um 27 þúsund fermetrar og liggur samsíða Reykjanesbraut, á milli Stekkjarbakka og Álfabakka. Í Norður-Mjódd er ráðgerð ný blönduð byggð sem kemur til með að nýta vel fyrirliggjandi borgarinnviði, styðja við verslun og þjónustu sem fyrir er í hverfinu og efla mannlif.

Skipulagslýsing, byggð á stefnumótun aðalskipulags Reykjavíkur, var auglýst 2023. Síðan þá hefur verkefnið verið í mikilli mótun og stendur sú vinna enn yfir.

Stefnt er að því að deiliskipulagið verði BREEAM Communities vottað. Vinna í samræmi við staðalinn tryggir að hugað er að samfélagslegum, hagrænum og umhverfisþáttum strax frá upphafi skipulagsvinnu.

Klasi er eigandi lóðarréttinda á svæðinu. Skipulagsráðgjafar eru JVST, Landslag, Efla og Örugg verkfræðistofa.  

Frá leikskóla að hjúkrunarheimili

Í skipulagsvinnu vegna Norður-Mjóddar er reiknað með heimild fyrir leikskóla og hjúkrunarheimili. Rekstur slíkra stofnana er háður samstarfi við opinbera aðila.

Íbúðir í hverfinu verða hugsaðar fyrir alla aldurshópa sem og aðstæður í görðum og á stígum innan þess.

Svæðisskipting

Norður-Mjódd hefur verið skipt upp í þrjú svæði. Á svæði A, næst Mjódd, er áhersla á atvinnuhúsnæði og m.a. gert ráð fyrir matvöruverslun en einnig íbúðum á efri hæðum, á svæði B er gert ráð fyrir íbúðum að mestu með einhverri þjónustu, m.a. möguleika á leikskóla. Á svæði C er gert ráð fyrir íbúðarbyggð.

Hæðir húsa

Unnið er eftir samþykktum aðalskipulags þar sem gera má ráð fyrir 4-7 hæða húsum. Hæstu húsin eru næst Reykjanesbraut og bæta því hljóðvist á dvalarsvæðum í inngörðum en lægri hús eru næst Stekkjabakka.  

Gönguleiðir

Fjölbreyttar og skjólgóðar gönguleiðir fara um svæðið og tengjast öðrum stígatengingum í Breiðholti. Við stígana verður fjölbreyttur gróður, lýsing og bekkir.  

Aðkoma bíla

Miðað er við að aðkoma bíla inn á skipulagssvæðið verði frá Álfabakka. Innan reitsins er gert ráð fyrir vistgötu með bílastæðum fyrir hreyfihamlaða og aðkomu fyrir sorpbíla og sjúkraflutninga.

Útivist og náttúra í Elliðaárdal

Einungis um fimm mínútna gangur er inn á útivistarsvæðið í Elliðaárdalnum. Gróðurfar í Elliðaárdal er mjög fjölbreytt og fuglalíf sömuleiðis. Fjölskrúðugt dýralíf er í dalnum, fá svæði í Reykjavík búa yfir jafn miklum fjölda fuglategunda en alls hafa um 25 tegundir verpt í dalnum.

Elliðaárnar eru laxveiðiá og talið er að laxveiði hafi verið stunduð í Elliðaám frá upphafi byggðar í Reykjavík, þá var stunduð ullarvinnsla í dalnum og á stríðsárunum voru þar reist braggahverfi á fimm stöðum. Áður en hverfin við dalinn byggðust upp var mikið um sumarbústaði og smáhús í dalnum. Sums staðar var rekinn búskapur. Rafstöð var gangsett við Elliðaár árið 1921 og markaði hún upphaf rafvæðingar Reykjavíkur.

Nánar á: reykjavik.is/ellidaardalur

Fylgstu með þróun Norður-Mjóddar

Við viljum vita hvað þér finnst!

Við vitum að breytingar í borginni hafa áhrif á marga. Ef þú þekkir svæðið eða hefur skoðun á málinu yrðum við þakklát fyrir þitt innlegg.

Niðurstöður könnunarinar verða birtar hér á síðunni og nýttar í áframhaldandi skipulagsvinnu.

Skráðu þig á póstlista Norður-Mjóddar